Naan-brauð er frábært að gera í gas pizza-ofnunum sem eru nýkomnir á markaðinn. Eftir nokkrar tilraunir, brennd brauð og hrá innaní tókst okkur að ná frábærum árangri og gera gómsæt brauð. Ýmislegt þarf að hafa í huga t.d. að hafa brauðin þunn, of þykk brauð geta orðið hrá innaní þegar þau eru orðin bökuð utan á. Gott er að gera bara eitt í einu og passið að hafa vel af hveiti á spaðanum svo brauðið festist ekki við og ekki láta brauðin bíða á spaðanum. Ekki setja of mikið af smjöri, bara þunnt lag, þá er auðveldara að baka það.

Naan-brauð í gas pizza-ofni

4 brauð

350 g hveiti

2 tsk. þurrger

½ tsk. lyftiduft

2 tsk. sykur

1 tsk. salt

125 ml vatn

150 g hrein jógúrt

80 g smjör, brætt

3-4 hvítlauksgeirar

hnefafylli steinselja eða 2 tsk. nigellufræ

Setjið hveiti, þurrger, lyftiduft, sykur og salt í hrærivélaskál og blandið saman. Hitið vatn og jógúrt saman þar til ylvolgt (36°C). Hellið vökva út í þurrefnin og hnoðið mjög vel saman með deigkróknum. Setjið klút yfir og látið bíða á hlýjum stað í 30-60 mín eða þar til deigið hefur tvöfaldast í stærð.

Bræðið smjör í potti, saxið hvítlaukinn og setjið út í ásamt steinselju eða nigellufræjum og hafið tilbúið með pensli.

Hitið pizza-ofninn með steininum í u.þ.bl. 380°C. Skiptið deiginu í 4 hluta og fletjið hvern út jafnóðum og setjið á deigspaðann með vel af hveiti undir svo auðvelt verði að losa það á steininn í ofninn. Penslið brauðið  með smjörinu og setjið hvítlauksbitana með á brauðið. Lækkið svolítið hitann á ofninum með því að minnka örlítið gasstreymið. Bakið brauðið eitt í einu og verið vakandi fyrir því að snúa því hluta úr hring allan tímann svo það bakist jafnt.

Posted by

Við í Salt Eldhúsi erum miklir sælkerar og erum sífellt að prófa okkur áfram í matargerð og að skapa nýja rétti. Ég er annar eigandi og framkvæmdastjóri Salt Elhúss ehf, kennslueldhúss sælkerans, fyrrum þáttagerðarmaður og síðan ritstjóri á Gestgjafanum. Hér á blogginu setjum við inn okkar uppáhalds uppskriftir.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s