Spínatbaka með fetaosti

Bökur eru uppáhald okkar hér í Salt Eldhúsi enda verið haldin mörg námskeið hér í bökugerð. Galdurinn felst í bökubotninum, stökkur og vel bakaður botn er lykilatriði í að bakan sé góð. Baka með þurrum og þykkum botni er aldrei góð. Aðferðin sem við notum er einföld en aðalatriðið er að smjörklumparnir í deiginu séu það stórir að þegar þeir bráðna í hveitinu við bakstur myndist loftrými, það er það sem gerir deigskelina stökka og brakandi. Þetta hljómar eins og efnafræði en bakstur er hálfgerð efnafræði og þessi aðferð virkar. Annað sem þarf að passa er að hnoða ekki deigið of mikið í lokin, þá mýkist deigið upp, verður seigt og smjörklumparnir eyðileggjast. Uppskriftin hér á eftir sýnist vera löng en hér er komin skotheld aðferð að fullkominni bökuskel.

Bökuskel:
260 g hveiti
1 tsk. salt
180 g kalt smjör í 3×3 cm bitum
3/4 dl ískalt vatn

Best er að laga bökudeig í matvinnsluvél því þá helst deigið kalt og smjörið verður jafnara í stærðinni. Setjið hveiti, salt og smjör í vélina og látið hana vinna í 30 sek.-1 mín, eða þar til smjörbitarnir eru á stærð við smáar grænar baunir. Bætið vatninu út í og látið vélina vinna áfram í 30 sek. -1 mín á hægum hraða. Hvolfið úr skálinni á borðið, það er ennþá laust í sér, og hnoðið deigið saman. Ekki hnoða of mikið, þetta eru um 20 handtök, deigið á rétt að loða saman í klump og má alveg vera óreglulegt með smjörklumpum í. Pakkið deiginu inn í bökunarpappír og geymið í kæli í 20 mín. Það má líka hnoða deigið saman í höndunum, þá er sama aðferð notuð en gott er að skera smjörið í 2×2 cm teninga og passa að mylja deigið saman þannig að smjörið verði í baunastærð og hafa hraðar hendur svo smjörið verði ekki mjúkt..
Hitið ofninn í 180C°. Rúllið deigið út á hveitistráðu borði og setjið í bökuform, skerið afgangsdeig utan með en látið það helst vera upp á brúnum á forminu því deigið skreppur saman við bakstur. Pikkið í botninn og upp með hliðunum með gaffli. Forbakið bökuskelina með pappír og fargi, (sjá “góð ráð”) í 10-15 mín eða þar til hún er gullin.
Fylling:
400 g spínat (fínt spínatsalat)
3 dl matreiðslurjómi
2 egg
1 eggjarauða
3 msk. parmaostur, rifinn
1 hvítlauksgeiri, saxaður eða marinn
1 tsk. sjávarsalt
nýmalaður pipar
200 g kirsuberjatómatar skornir í tvennt

200 g fetaostur, skorinn í teninga
örtítið af parmaost til að strá ofan á

Setjið upp fullan ketil af vatni. Setjið spínat í rúmgott sigti og hellið sjóðandi vatni yfir. Kreistið vatnið úr því þegar það hefur kólnað nóg til að meðhöndla það, saxið það síðan gróft niður. Ef þið notið gróft spínat er best að sjóða það í saltvatni í 1-2 mín. Setjið allt hráefni nema tómatana og fetaostinn saman í skál og þeytið létt saman með gaffli. Raðið tómötum og osti í bökuskelina og hellið fyllingunni yfir. Stráið parmaost yfir og malið svolítið af pipar yfir líka. Bakið í 35-40 mín. Berið fram með góðu salati.

Posted by

Við í Salt Eldhúsi erum miklir sælkerar og erum sífellt að prófa okkur áfram í matargerð og að skapa nýja rétti. Ég er annar eigandi og framkvæmdastjóri Salt Elhúss ehf, kennslueldhúss sælkerans, fyrrum þáttagerðarmaður og síðan ritstjóri á Gestgjafanum. Hér á blogginu setjum við inn okkar uppáhalds uppskriftir.

Leave a comment