Grísk spínatbaka spanakópítes

Þessi gríski réttur er í miklu uppáhaldi hjá okkur og mjög páskalegur. Blaðdeigið fæst í Hagkaup, Nóatúni og Istanbul market sem er í Ármúla og er mjög sniðugt í marga rétti. Fyrir þá sem finnst bökur góðar er sniðugt að nota blaðdeig í botninn til að spara tíma og vinnu, nota nokkur blöð og smyrja með olíu eða smjöri í milli eins og gert er í þessum rétti. Munið að blaðdeig þarf að afþýða svo gott sé að handfjatla það. Ef þið vinnið með hálfrosið deig molnar það allt niður.

3 msk. olía

1 laukur saxaður eða 6-8 vorlaukar sneiddir fínt

3 hvítlauksgeirar, saxaðir

400 g spínat

400 g kotasæla

200 g ferskur fetaostur eða 1 krukka af fetaost vökvi sigtaður frá

hnefafylli ferskt dill eða 3 tsk. þurrkað

hnefafylli fersk steinselja eða 3 tsk. þurrkuð ( má sleppa)

sjávarsalt og nýmalaður pipar

 

1 pakki blaðdeig (fíló-deig)

6 msk. olía

80 g smjör, brætt

_IGP9646.jpg

Setjið upp vatn í pott. Hitið ofninn í 200°C, 180°C á blástur. Steikið lauk í olíu þar til hann fer að verða glær, bætið þá hvítlauk út í og steikið aðeins áfram. Sjóðið spínatið örstutta stund í sjóðandi vatni, hellið því í sigti og látið renna af því, gott að þrýsta því ofan í sigtið til að ná úr því öllum vökva. Setjið laukblönduna í skál, bætið spínati, kotasælu, fetaosti og fersku kryddi út í, smakkið til með salti og pipar. Blandið olíu og smjöri saman. Benslið botninn á ofnföstu formi, mitt er 35×25 cm. Leggið blaðdeigsörk á botninn og penslið með smjörblöndunni, setjið helminginn af deigblöðunum í formið og smyrjið á milli. Setjið fyllinguna á deigið í forminu. Setjið afganginn af deiginu ofan á og smyrjið á milli. Penslið deigið efst og skerið í gegn um allt í 8 jafna bita. ef þið eigið afgang af smjörblöndunni er gott að hella jenni bara yfir. Bakið réttinn í 35-45 mín eða þar til hann er orðin gullinn og girnilegur. Þið notið styttri bökunartíma ef þið notið blástur. Berið fram með góðu salati. Gott að frysta og nota í nestispakkann. Best er þá að hita upp við 100°C í 10-15 mín.

_IGP9651.jpg

Posted by

Við í Salt Eldhúsi erum miklir sælkerar og erum sífellt að prófa okkur áfram í matargerð og að skapa nýja rétti. Ég er annar eigandi og framkvæmdastjóri Salt Elhúss ehf, kennslueldhúss sælkerans, fyrrum þáttagerðarmaður og síðan ritstjóri á Gestgjafanum. Hér á blogginu setjum við inn okkar uppáhalds uppskriftir.

Leave a comment