Croque monsieur

Ég er nýkomin frá Frakklandi og þar eru allir að fá sér Croque monsieur á bistróum og veitingahúsum með léttan mat. Frakkar borða eftir árstíðum og nú eru súpur og bráðinn ostur vinsælt í kuldanum eins og hér heima.

Brauðið eða samlokan er ekta bistro-matur og á sér langa sögu. Í byrjun árs 1900 var það kokkur á bistró í París sem gerði þessa samloku líklega fyrstur, hann var búin með baguette-birgðir í húsinu og ákvað að nota “pain de mie” eða samlokubrauð í samloku og kallaði hana samloku dagsins. Síðan hefur svona samloka verið vinsæll hádegisverður um allt Frakkland. Matarmeiri útgáfa er með spældu eggi ofan á og er kölluð Croque madam eða samloka frúarinnar.

4 samlokur

Hér er uppskrift að ekta Croque monsieur. Það þýðir að í henni er bécamel-sósa sem er jafningur sem við köllum gjarnan uppstúf. Lítill vandi er að gera sósuna, bara passa að setja mjólkina ekki alla í einu út í smjörbolluna og vera með písk á kantinum. Með því að hafa sósuna verður brauðið sérlega djúsí og gott. Brauðið getur verið hvaða brauð sem er, súrdeig, gróft eða bara fransbrauð en Frakkarnir nota það og er það kallað “pain de mie” og er örlítið það sykrað hvítt brauð.

8 sneiðar brauð

4 sneiðar góð skinka

200 g rifinn ostur, mjög gott að nota fullfeitann

1 uppskrift bécamel-sósa

Hitið ofninn í 220°C. Raðið brauðsneiðunum á borðið og skiptið bécamel-sósunni jafnt á þær. Það fer u.þ.bl. 1 góð matskeið á hverja. Smyrjið sósunni á brauðsneiðarnar og vel út á jaðrana. Dreifið rifna ostinum ofan á sósuna. Setjið nú sneið af skinku á 4 brauðsneiðar. Setjið þær sem ekki er skinka á ofan á skinkubrauðsneiðarnar svo þið fáið 4 samlokur. Setjið bökunarpappír á ofnplötu og samlokurnar á hann. Bakið í 15 mín, eða þar til þær eru gullnar og girnilegar. Berið fram með grænu salati með vinagrettu.

Bécamel-sósa:

25 g smjör

25 g hveiti

3 dl mjólk

1 tsk. Dijon sinnep

½ tsk. salt

svartur pipar

Bræðið smjör í potti. Bætið hveiti út í og hrærið saman í smjörbollu. Bætið mjólk út í smátt og smátt (mikilvægt) og hrærið í allan tímann. Notið sleif og písk ef á þarf að halda til að fá kekkjalausan jafning. Sjóðið við vægan hita stutta stund til að fá hveitibragðið í burtu. Saltið og malið pipar yfir. Bætið sinnepi út í og hrærið allt vel saman. Smakkið og bætið salti ef þarf.

Posted by

Við í Salt Eldhúsi erum miklir sælkerar og erum sífellt að prófa okkur áfram í matargerð og að skapa nýja rétti. Ég er annar eigandi og framkvæmdastjóri Salt Elhúss ehf, kennslueldhúss sælkerans, fyrrum þáttagerðarmaður og síðan ritstjóri á Gestgjafanum. Hér á blogginu setjum við inn okkar uppáhalds uppskriftir.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s