Arros con pollo

Þessi spánski réttur Arros con pollo,(borið fram “arros kon pojo” með áherslu á r-in) hefur verið vinsæll réttur í fjölskyldunni í mörg ár og krakkarnir okkar haldið áfram að elda hann heima  hjá sér eftir að þau eignuðust sín eigin heimili. Þetta er nokkuð stór uppskrift en afgangurinn er góður og tilvalinn í nestispakkann. Dugar fyrir 6 svanga.

8 -10 kjúklingabitar, best að nota efri læri með skinni á

3 msk. olía

1 dl hveiti

salt og pipar

1 laukur, saxaður

3 hvítlauksgeirar saxaðir

320 g (4 dl) Aborio hrísgrjón, þessi stuttu

1 tsk. paprika

1/4 tsk chiliflögur

1/4 tsk. saffran (má sleppa)

6 1/2 dl vatn 

1 kjúklingasoðteningur 

1 dós tómatar, saxaðir

1 msk. tómatpúra 

Veltið kjúklingabitunum upp úr hveiti og brúnið þá á báðum hliðum, saltið og piprið. Ég krydda á þessu stigi oft með einhverju eins og papriku góðu kjúklingakryddi, bara einhverju sem ég á í skúffunni. Setjið bitana á disk og geymið. Fjarlægið fituna af pönnunni en skiljið 2-3 msk eftir til að steikja laukinn upp úr. Steikið laukinn þar til hann fer að verða glær og gullinn, bætið hvítlauk út í og steikið aðeins áfram. Bætið hrísgrjónum út í ásamt þurrkryddi og steikið áfram í 2 mín. Hellið nú vatninu, kjúklingasoðteningnum, tómötum ásamt safanum úr dósinni og tómatpúrrunni á pönnuna, hrærið allt vel saman, saltið og piprið. Raðið kjúklingabitunum ofan á, setjið lok eða álpappír ofan á pönnuna og látið þetta malla við meðalhita í 25-30 mín. Þið getið smakkað grjónin eftir 25 mín og ef þau eru með harðan kjarna þurfa þau að malla 5 mín lengur. Takið lokið af og ef enn er mikill vökvi í pottinum er gott að látið rjúka úr honum í 5 mín. Ef þið viljið fá svolítið grillaða skorpu á kjúllan er sniðugt að setja pönnuna aðeins undir heitt grill, ég geri það stundum. 

*Saffran fæst í Fiska.is á Nýbýlkjúavegi

Posted by

Við í Salt Eldhúsi erum miklir sælkerar og erum sífellt að prófa okkur áfram í matargerð og að skapa nýja rétti. Ég er annar eigandi og framkvæmdastjóri Salt Elhúss ehf, kennslueldhúss sælkerans, fyrrum þáttagerðarmaður og síðan ritstjóri á Gestgjafanum. Hér á blogginu setjum við inn okkar uppáhalds uppskriftir.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s