Napóleonskökur

Napóleonskökur eru nú næstum hættar að sjást í bakaríunum. Þeir sem eldri eru muna margir eftir þessum girnilegu kökum sem fengust í öllum betri bakaríum í bænum fyrir um 20-30 árum. Ég fór í ótal sendiferðir í Bernhöftsbakarí fyrir ömmu mína þegar ég var lítil að ná í þessar guðdómlegu kökur og finnst þær ennþá dásamlega góðar. Hér er einföld uppskrift af þeim sem allir gera gert.

Napóleonskökur

Uppskrift gerir 8 stór stykki

4 plötur smjördeig

1 pakki vanillubúðingur

4 dl rjómi

1 tsk. vanillusykur eða vanilludropar

1 dl hindberjasulta

1 ½ dl kakómalt

8 kirsuber, ný eða sultuð

Hitið ofninn í 220°C. Fletjið deigplöturnar út í ferhyrninga um 12×32 cm. Setjið bökunarpappír á 2 plötur og leggið deigið á plöturnar. Bakið deigið í um 10 mín eða þar til það er fallega gullið. Látið kökurnar kólna. Lagið sterka blöndu af vanillubúðinginn úr helmingnum af mjólkinni sem gefin er upp. Þeytið rjóman. Setjið svolítið af rjómanum út í vanillubúðinginn og smakkið til með vanillusykri eða dropum. Smyrjið sultu á 2 kökubotnana, setjið vanillubúðing ofan á og rjóma þar ofan á. Leggið kökubotn á rjómann, pressið aðeins á og jafnið rjómanum á hliðunum svo þær verði jafnar. Hrærið smávegis af vatni út í kakómaltið svo það verði passlega þykkt og smyrjið ofan á kökuna. Skerið hverja köku í 4 bita og setjið kirsuber á toppinn. Þessar kökur voru líka oft með bleikum glassúr ofan á.

Posted by

Við í Salt Eldhúsi erum miklir sælkerar og erum sífellt að prófa okkur áfram í matargerð og að skapa nýja rétti. Ég er annar eigandi og framkvæmdastjóri Salt Elhúss ehf, kennslueldhúss sælkerans, fyrrum þáttagerðarmaður og síðan ritstjóri á Gestgjafanum. Hér á blogginu setjum við inn okkar uppáhalds uppskriftir.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s