Brauð með bökuðum CAMEMBERT

Í fallega bænum Bath á Bretlandseyjum er matreiðsluskóli Richard Bertinet. Þangað fór ég fyrir nokkrum árum á vikunámskeið í brauðbakstri þar sem allt sem viðkemur brauði var skoðað í þaula. Á námskeiðinu bökuðum við brauð og borðuðum brauð daginn úr og inn sem er algjört dekur fyrir þá sem hafa áhuga á að læra allt um brauð. Í einu hádeigishlénu var boðið upp á þetta girnilega brauð með bræddum osti. Bráðinn ostur er alltaf ómótstæðilegur sérstaklega góður hvítmygluostur. Þetta brauð er með bæði eggjum og smjöri en þið getið notað þá brauðuppskrift sem þið hafið náð tökum á sem er með svipað magn af hveiti. Í þessari uppskrift er meira af pressugeri en ég nota venjulega en það er vegna þess að það þarf talsvert til að lyfta deigi með eggjum og smjöri. Uppskriftin er með stórum Brie-ost sem er hægt að panta hjá MS eða fá í Costco. Ef þið viljið gera minni uppskrift með meðalstórum hvítmygluost er upplagt að skipta deiginu í tvennt og annað hvort frysta helminginn eða baka lítið formbrauð. Athugið að minni brauð þurfa þó styttri bökunartíma, u.þ.bl. 25 mín. 

Fyrir 8-10

500 g brauðhveiti

40 g sykur

50 g smjör, skorið í litla bita

3 meðalstór egg (meðalstór egg eru 60 g með skurn)

2 dl mjólk

1 msk. sjávarsalt

50 g ferskt ger eða 2 tsk. þurrger

1 stór Brie-ostur

1 msk. ólífuolía

örlítið timian og rósmarin, ferskt eða þurrkað

nýmalaður pipar

1 egg sundurslegið

Setjið hveiti og sykur í hrærivélaskál ásamt smjörinu og látið vélina ganga með hræraranum (K-inu) þangað til smjörið hefur blandast við hveitið í litla mola. Þetta má líka gera með því að mylja saman í höndum en er fljótlegra svona. 

Setjið eggin í skál. Velgjð mjólkina með saltinu í litlum potti. Hellið mjólkinni yfir eggin og pískið vel saman. Blandan á að vera fingurvolg (37%) og ef hún er of heit er ráð að bíða aðeins svo við drepum ekki krúttlegu gerlana í gerinu. Leysið gerið upp í mjólkurblöndunni og hellið henni síðan út í hveitið. Hnoðið saman með hnoðaranum í a.m.k. 10 mín. Dustið örlitlu af hveiti á deigkúluna og losið um deigið í skálinni með brauðsköfu eða sleikju svo hveitið nái að þekja deigið, á þennan hátt á deigið auðveldara með að hefast vel. Látið deigið hefast, með klút yfir, á hlýjum stað í 1 klst. 

Losið deigið úr skálinni og hnoðið létt saman á borðinu. Finnið 30 cm breitt form sem þolir ofnhita. Mótið köku úr deiginu sem passar í formið, gott að fletja bara með fingurgómum, setjið kökuna á örk af bökunarpappír og leggið deigið í formið. Setjið ostinn ofan á og skerið rákir í hann þvers og kruss. Látið nú hefast aftur í 30 -40 mín Hitið ofninn tímanlega á 190°C (180°C blástur). Dreypið ólífuolíu ofan á ostinn. Stráið kryddum og pipar yfir. Penslið brauðið með eggjahræru eða mjólk. Bakið í ofninum í 40 mín. Berið fram heitt með góðu salati með vínagrettu 

Posted by

Við í Salt Eldhúsi erum miklir sælkerar og erum sífellt að prófa okkur áfram í matargerð og að skapa nýja rétti. Ég er annar eigandi og framkvæmdastjóri Salt Elhúss ehf, kennslueldhúss sælkerans, fyrrum þáttagerðarmaður og síðan ritstjóri á Gestgjafanum. Hér á blogginu setjum við inn okkar uppáhalds uppskriftir.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s