Ítalskir kossar – bace di dama

50-60 stk

Þær eru sannarlega eins og koss þessar ljúfu smákökur með Ítalska bragðinu sem eru ættaðar frá Piedmont á Ítalíu. Ítalir elska bragð af ristuðum heslihnetum og uppáhaldsísinn þeirra “gianduja” er einmitt heslihnetuís. Mikilvægt er að rista hneturnar en við það verða þær alveg dásamlega góðar.   

250 g smjör, mjúkt

120 g flórsykur

1 ½ tsk. vanilluextrat eða 2 tsk. vanilludropar

250 g hveiti

50 g kakó

100 g heslihnetur ristaðar á pönnu flysjaðar og malaðar fínt

Fylling:

100 g súkkulaði saxað smátt

¾  dl rjómi

Hitið ofninn í 180°C  (175 á blástur). Ristið heslihnetur eins og sagt er frá hér að neðan. Hrærið smjör, sykur og vanillu þar til ljóst og kremkennt, skafið meðfram hliðum nokkrum sinnum á meðan svo allt blandist vel saman. Sigtið hveiti og kakó saman í skál, bætið hveitiblöndunni út í deigið ásamt möluðum hnetum og blandið vel saman. Kælið deigið í 30 mín. Hnoðið litlar kúlur úr deiginu og setjið á smjörpappírsklæddar ofnplötur, mikilvægt að hafa þær litlar því þær eru settar 2 og 2 saman.Bakið þær í 10-15 mín. Brytjið súkkulaði í skál. Hitið rjómann í potti og hellið honum ofan á súkkulaðið og látið bíða í 5 mín. Hrærið súkkulaðiblönduna saman í krem og kælið það þar til hægt er að smyrja því. Setjið kökurnar saman tvær og tvær með kreminu. Þessar kökur geymast í lokuðu íláti í viku í kæliskáp en er auðvelt að frysta. Þannig geymast þær í 6 mánuði. 

Ristaðar heslihnetur:

Setjið heslihnetur í ofnskúffu og bakið í 6-8 mín eða þangað til hýðið er farið að losna af. Látið þær kólna í ca. 10 mín. Vætið nokkur eldhúsbréf og leggið á borðið. Pakkið hnetunum inn í það og rúllið þeim í bréfinu svo hýðið losni. Þið getið notað viskustykki en það er mikill litur í hýðinu sem næst ekki úr við þvott. Hýðið fer ekki alltaf af öllun hnetunum, sumt er fast á en það er allt í lagi ef hýðið fer af flestum. Malið hnetur fínt í matvinnsluvél.

Posted by

Við í Salt Eldhúsi erum miklir sælkerar og erum sífellt að prófa okkur áfram í matargerð og að skapa nýja rétti. Ég er annar eigandi og framkvæmdastjóri Salt Elhúss ehf, kennslueldhúss sælkerans, fyrrum þáttagerðarmaður og síðan ritstjóri á Gestgjafanum. Hér á blogginu setjum við inn okkar uppáhalds uppskriftir.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s