Sjónvarpskaka

Sjónvarpskaka var bökuð næstum fyrir hverja helgi heima hjá mér þegar ég var lítil og hún er bara þannig að öllum finnst hún góð. Hún var líka oft bökuð þegar farið var í sumarbústað, sjónvarpskaka og appelsínukaka voru gjarnan bakaðar til skiptis. Þetta er ein af þeim kökum sem er algjörlega ómótstæðileg nýbökuð þegar kókostoppurinn er stökkur og brakandi. Kökuna má gjarnan frysta og hún er alveg frábær í nesti í lautarferðina.  

25 -30 stk.

4 egg, stór

240 g sykur

200 g hveiti

2 tsk. lyftuduft

1 tsk. vanilludropar

50 g smjör, brætt

2 dl mjólk

Hitið ofninn í 200°C (190°C á blástur). Þeytið egg og sykur saman þar til létt og loftkennt, alltaf gott að gefa eggjablöndunni góðan tíma í hrærivélinni, það skilar sér. Sigtið hveiti og lyftiduft saman í skál. Blandið smjöri, mjólk og vanilludropum saman. Setjið hveitiblönduna og vökvann út í eggin og hrærið saman á minnsta hraða þar til allt er vel blandað. Smyrjið form 24×36 cm (venjulegt skúffukökuform) með olíu og fóðrið það með bökunarpappír Hellið deiginu í og jafnið út. Bakið kökuna í 20 mín. Á meðan gerið þið kókosblönduna.

Kókosblanda:

100 g smjör

150 g kókosmjör, ég nota gróft 

220 g púðursykur

½ dl rjómi eða mjólk

Setjið allt í pott og sjóðið saman þar til gullið og ilmandi. Þegar kakan hefur bakast í 20 mín, þá takið þið hana út úr ofninum og jafnið girnilegu kökosblöndunni yfir. Bakið áfram í 10 mín. Látið kólna svolitla stund og skerið síðan í bita. Það er smekksatriði hversu stórir bitarnir eru en ég er oftast með 25 stk. Kakan er ómótstæðileg nýbökuð en hún geymist í nokkra daga í lokuðu boxi en er líka gott að frysta. 

Posted by

Við í Salt Eldhúsi erum miklir sælkerar og erum sífellt að prófa okkur áfram í matargerð og að skapa nýja rétti. Ég er annar eigandi og framkvæmdastjóri Salt Elhúss ehf, kennslueldhúss sælkerans, fyrrum þáttagerðarmaður og síðan ritstjóri á Gestgjafanum. Hér á blogginu setjum við inn okkar uppáhalds uppskriftir.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s