Segja má að það sé óvenjuleg samsetning að borða ávexti og fisk saman en hið ljúfa bragð af smálúðunni fer mjög vel með vínberjunum og rúsínum. Þetta er kannski svolítill óður til lúðusúpunar hennar ömmu sem mér fannst góð. Rétturinn er mjög fljótlegur og tilvalinn gestaréttur. Ég ber yfirleitt kartöflur fram með en kús-kús, hrísgrjón eða brauð er líka gott. Þessi fiskréttur er óvenjulegur en okkar uppáhald.
Eitt stórt eða 2-4 stykki flökuð smálúða 700-800 g samtals
salt og pipar
½ sítróna, safi af henni
30 g smjör
60 g ljósar rúsínur (fást í heilsubúðum) eða bara þessar dökku
180 g ljós vínber skorin í tvennt
2 msk. steinselja söxuð
3 msk. balsamedik
5 msk. marsalavín eða þurrt sjérrí
Hitið ofninn í 200°C. Smyrjið rúmgott form, sem rúmar flökin í einu lagi, með olíu og setjið fiskstykkin, með roðhliðina niður, í það. kryddið með salti, pipar og sítrónusafa, setjið smjör ofan á í litlum klípum. Hrærið rúsínur, vínber, steinselju, balsamedik og vín í skál og dreifið blöndunni yfir fiskinn. Bakið þetta í 15-20 mín. bökunartíminn fer eftir þykkt fiskstykkjanna. Það kemur gott soð í mótið, vínið, edikið og soðið af vínberjunum og fiskinum. Rétturinn er fyrir 4 manns.