Marensterta með rice-krispís og karamellu

Er hún komin ? Sögðu tvær konur á besta aldri þegar þær komu inn í Te og Kaffi á Laugaveginum og þær voru með einhvern glampa í augunum. Það var föstudagur og þær voru ásamt fleirum að bíða eftir að drottningin mætti á svæðið. “Marensdrottningin”, sem einmitt er uppskrift að hér á þessari síðu. Hún slær allar aðrar bombur út, sæt en þó ekki um of, botnarnir stökkir og gott að hafa bit í sem rice-krispís gerir. Sannarlega drottningin á veisluborðinu, algjör klassiker.

5 eggjahvítur (150 g)

160 g sykur

110 g púðursykur

60 g rice-krispís (5 dl)

Hitið ofninn í 150°C. Þeytið eggjahvítur og báðar tegundir af sykri saman þar til stíft og fallegt, þetta tekur 6-8 mín. á meðalhraða. Bætið rice-krispís út í og blandið saman við með sleikju.  Setjið bökunarpappír í botninn á 2×26 cm breiðum formum, hér verður að nota há smelluform. Setjið matarolíu á eldhúspappír og berið á innri hliðar á forminu. Skiptið deiginu jafnt á milli formana og skiljið eftir örlítið rúm út við kantana svo marensinn fái rúm til að lyfta sér. Bakið í 60 mínútur.  Losið um hliðarnar með hníf og takið varlega úr forminu. Veljið fallegri botninn til að hafa ofan á.  Leggið saman með þeyttum rjóma og setjið á tertudisk. Hellið karamellusósunni ofan á.

Á milli:

5 dl rjómi, þeyttur

Karamellukrem ofan á:

2 dl rjómi

100 g púðursykur

2 msk. síróp

30 g smjör

1 tsk. vanilludropar

Setjið rjóma, púðursykur og síróp saman í pott og sjóðið þar til það fer að þykkna. þetta tekur u.þ.bl. 8 mínútur og borgar sig að fylgjast vel með allan tíman og hræra í. Bætið smjöri og vanillu út í.

Posted by

Við í Salt Eldhúsi erum miklir sælkerar og erum sífellt að prófa okkur áfram í matargerð og að skapa nýja rétti. Ég er annar eigandi og framkvæmdastjóri Salt Elhúss ehf, kennslueldhúss sælkerans, fyrrum þáttagerðarmaður og síðan ritstjóri á Gestgjafanum. Hér á blogginu setjum við inn okkar uppáhalds uppskriftir.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s