Bananabrauð

Flest heimili eiga sína uppskrift að bananabrauði. Banana má frysta og nota í svona brauð. Hér er okkar uppskrift, stundum notum við val- eða pecanhnetur í hana en yngri kynslóðin er ekki mjög hrifin af því, þannig að oftast er það hnetulaust. Við höfum ekki tölu á því hversu oft við höfum bakað ljúfenga brauðið okkar eftir þessari uppskrift og kosturinn er hvað það er fljótlegt að hræra í það.

 

3 stórir bananar, vel þroskaðir ( 4 ef þeir eru litlir)

70 g smjör, brætt

120 g sykur

1 egg

1 tsk. vanilludropar

1 tsk. matarsódi

salt á hnífsoddi

230 g hveiti

50 g val-eða pekanhnetur, saxaðar mjög gróft (má sleppa)

 

Hitið ofninn í 175°C. Setjið bút af bökunarpappír á botn og upp með hliðum á 25 cm löngu jólakökuformi eða sambærilegu formi sem rúmar 1 1/2 líter. Stappið banana og setjið í rúmgóða skál. Bætið öllu út í sem er í uppskriftinni í skálina með banönunum og hrærið allt saman með sleif. Hellið deiginu í formið og bakið neðst í ofninum í 50 mín. Þegar bökunartíminn er liðinn er gott að stinga prjón í brauðið og ef hann kemur hreinn úr þá er brauðið tilbúið. geymist í viku vel pakkað inn í ísskáp. Má frysta og geymist þannig í 6-9 mánuði.

Posted by

Við í Salt Eldhúsi erum miklir sælkerar og erum sífellt að prófa okkur áfram í matargerð og að skapa nýja rétti. Ég er annar eigandi og framkvæmdastjóri Salt Elhúss ehf, kennslueldhúss sælkerans, fyrrum þáttagerðarmaður og síðan ritstjóri á Gestgjafanum. Hér á blogginu setjum við inn okkar uppáhalds uppskriftir.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s