Thai tómatsúpa

Á þeim námskeiðum þar sem við bökum kökur eða brauð og erum ekki að laga mat sem við borðum síðar bjóðum við alltaf upp á heimalagaða súpu og nýbakað brauð. Oftar en ekki erum við beðin um uppskrift og hér er súpan okkar góða með kryddum sem rífa í. 

Fyrir 4-6

 

2 msk ólífuolía

1 laukur, saxaður

2 gulrætur, saxaðar

1 rauð paprika, söxuð

½ – 1 msk engifer, saxað eða rifið

½ -1 msk. thai red curry paste

1 dós (400g) saxaðir tómatar

1 dós (400) g kókosmjólk

1 stöng sítrónugras (eða safi af ½ sítrónu eða límónu)

5 -7 dl vatn 

Hitið olíu á pönnu við meðalhita. Bætið lauk, gulrótum og papriku saman við og hrærið í 3 mínútur. 

Bætið engifer og curry paste og steikið í um 30 sekúndur. Bætið hinum hráefnunum saman við. Leyfið að malla með loki á í um 20 mínútur eða þar til grænmetið er orðið mjúkt. Fjarlægið sítrónugrasið (ef þið notuðuð það) og maukið. 

Setjið súpuna aftur á hitann og bætið meira vatni ef þarf til að þynna súpuna. Hitið vel og leyfið að malla smá. Berið fram etv. með góðu brauði.

Posted by

Við í Salt Eldhúsi erum miklir sælkerar og erum sífellt að prófa okkur áfram í matargerð og að skapa nýja rétti. Ég er annar eigandi og framkvæmdastjóri Salt Elhúss ehf, kennslueldhúss sælkerans, fyrrum þáttagerðarmaður og síðan ritstjóri á Gestgjafanum. Hér á blogginu setjum við inn okkar uppáhalds uppskriftir.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s